Stólarnir náðu ekki meti Snæfells og KR Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 14. apríl 2015 15:00 Darrell Flake og félagar voru búnir að vinna fimm fyrstu leikina. Vísir/Andri Marinó
Tindastóll tapaði í gær sínum fyrsta leik í úrslitakeppninni í ár þegar liðið lá með fjórtán stigum á heimavelli á móti Haukum en fyrir leikinn var liðið eina ósigraða liðið í úrslitakeppni Dominos-deildar karla í körfubolta. Stólarnir fá tvö tækifæri til viðbótar til að komast í lokaúrslitin en þeir misstu hinsvegar af meti með því að tapa leiknum í gær. Snæfellsliðið frá 2004 og KR-liðið frá 2009 eru einu liðin sem hafa unnið fyrstu sex leiki sína í úrslitakeppni en með sigri í gær hefði Tindastólsliðið jafnað metið þeirra. Tindastólsliðið hefði jafnframt orðið fyrsta liðið til að komast taplaust í lokaúrslitin síðan að það þurfti að vinna þrjá leiki í átta liða úrslitunum. Þetta er annað árið í röð sem liði mistekst að vinna sjötta leikinn í röð eftir að hafa unnið fimm fyrstu leiki sína í úrslitakeppni. KR-ingar kynntust því einnig í fyrra en þeir töpuðu þá á heimavelli í sjötta leik alveg eins og Stólarnir í ár. Stjarnan vann þá þriðja leikinn í Vesturbænum og minnkaði muninn í 2-1 í undanúrslitaeinvígi liðanna. KR-ingar unnu hinsvegar næsta leik og fóru í lokaúrslitin þar sem þeir tryggðu sér Íslandsmeistaratitilinn. Nú er að sjá hvort Tindastóll hefur sama háttinn á þegar þeir mæta Haukum á Ásvöllum annað kvöld. Sigur þýðir sæti í lokaúrslitunum á móti annaðhvort KR eða Njarðvík en tap þýðir að liðin mætast í oddaleik á Króknum á föstudagskvöldið.Besta byrjun í einni úrslitakeppni 1984-2015:6-0 Snæfell, 2004 KR, 2009 - Íslandsmeistari5-0 KR, 1990 - Íslandsmeistari Grindavík, 1997 - 2. sæti KR, 2014 - Íslandsmeistari Tindastóll, 20154-0 Njarðvík, 1984 - Íslandsmeistari Njarðvík, 1986 - Íslandsmeistari Njarðvík, 1987 - Íslandsmeistari Snæfell, 2008 - 2. sæti Grindavík, 2009 - 2. sæti KR, 2011 - Íslandsmeistari Grindavík, 2012 - Íslandsmeistari KR, 2015
Dominos-deild karla Mest lesið Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Slot rekinn frá Liverpool Enski boltinn Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport „Betra liðið tapaði” Fótbolti „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ Íslenski boltinn „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Elvar Már óvænt til Tenerife út tímabilið Pirraður yfir því hvernig Baldur yfirgaf Stjörnuna Grét alla Reykjanesbrautina Sjá meira