Sjöundi leikur Ívars á aðeins níu dögum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. apríl 2015 16:00 Ívar Ásgrímsson, þjálfari Hauka. Vísir/Ernir
Það hefur verið nóg að gera hjá Ívari Ásgrímssyni, þjálfara Haukaliðanna, síðustu daga en bæði liðin eru í undanúrslitum Dominos-deildanna. Karlalið Hauka mætir Tindastól í Schenkerhöllinni á Ásvöllum í kvöld og verður að vinna til að fá oddaleik á Króknum á föstudaginn. Kvennalið Hauka tapaði á móti Keflavík í TM höllinni í Keflavík í gær og þar með undanúrslitaeinvíginu 3-0. Haukakonur eru því komnar í sumarfrí og Ívar tilkynnti eftir leikinn að hann væri hættur með liðið. Ívar talaði um mikið álag sem fylgir því að þjálfa tvo meistaraflokka í fremstu röð og þessi reynslumikli þjálfari hefur heldur betur fengið að kynnast því undanfarna daga. Leikurinn í kvöld verður sjöundi leikur liða Ívars á aðeins níu dögum eða frá því að karlaliðið spilaði fyrsta leikinn í undanúrslitaeinvíginu við Tindastól 7. apríl síðastliðinn. Á síðustu níu dögum hefur Ívar aðeins fengið frí fimmtudaginn 9. apríl og sunnudaginn 12. apríl og fjórir af þessum leikjum hafa verið á útivelli með tilheyrandi ferðlögum (tvisvar á Krókinn og tvisvar til Keflavíkur). Ekki hefur það auðveldað þessa törn fyrir Ívar að Haukaliðin hafa tapað fimm af þessum sex leikjum en Haukastrákarnir geta glatt hann með sigri í kvöld. Takist það bíður liðsins oddaleikur í Síkinu á Króknum á föstudaginn.Leikir liða Ívars Ásgrímssonar á síðustu dögum: 7. apríl - Karlaliðið tapaði 64-94 fyrir Tindastól á Sauðárkróki 8. apríl - Kvennaliðið tapaði 51-82 fyrir Keflavík í Keflavík 9. apríl - enginn leikur 10.apríl - Karlaliðið tapaði 74-86 fyrir Tindastól á Ásvöllum 11. apríl - Kvennaliðið tapaði 67-74 fyrir Keflavík á Ásvöllum 12. apríl - enginn leikur 13. apríl - Karlaliðið vann 93-79 sigur á Tindastól á Sauðárkróki 14. apríl - Kvennaliðið tapaði 66-75 fyrir Keflavík í Keflavík 15. apríl - Karlaliðið mætir Tindastól á Ásvöllum í kvöld
Dominos-deild karla Mest lesið Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Slot rekinn frá Liverpool Enski boltinn Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport „Betra liðið tapaði” Fótbolti „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ Íslenski boltinn „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Elvar Már óvænt til Tenerife út tímabilið Pirraður yfir því hvernig Baldur yfirgaf Stjörnuna Grét alla Reykjanesbrautina Sjá meira