Körfubolti

Líf í Kanínum landsliðsþjálfarans

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vísir
Svendborg Rabbits vann í kvöld mikilvægan sigur á Horsens, 102-89, í undanúrslitarimmu liðanna í úrslitakeppni dönsku úrvalsdeildarinnar.

Leikurinn fór fram í Horsens og hefðu heimamenn með sigri tryggt sér 3-0 sigur í rimmunni og sæti í lokaúrslitunum.

Eftir jafnan fyrri hálfleik tók lið Rabbits völdin í þriðja leikhluta og lagði grunninn að öruggum sigri. Argentínumaðurinn Antonio Pernigotti fór mikinn í liði Rabbits og skoraði 48 stig.

Craig Pedersen, landsliðsþjálfari Íslands, stýrir liði Rabbits og Arnar Guðjónsson er aðstoðarþjálfari hjá liðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×