Körfubolti

Hlynur og Jakob báðir með 20 stig í sigri Sundsvall

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Hlynur var með ansi huggulega 20/13/3 línu í dag.
Hlynur var með ansi huggulega 20/13/3 línu í dag. vísir/valli
Hlynur Bæringsson og Jakob Örn Sigurðarson fóru mikinn þegar Sundsvall Dragons vann Södertälje Kings í úrslitakeppninni í sænska körfuboltanum.

Hlynur skoraði 20 stig, reif niður 13 fráköst og gaf þrjár stoðsendingar. Jakob var einnig með 20 stig og tók fjögur fráköst, en hann hitti úr sex af átta þriggja stiga skotum sínum í leiknum.

Ægir Þór Steinarsson skoraði eitt stig fyrir Sundsvall, tók þrjú fráköst og gaf fjórar stoðsendingar en Ragnar Nathanaelsson kom ekkert við sögu.

Leikurinn var jafn framan af en Drekarnir náðu yfirhöndinni í 2. leikhluta sem þeir unnu 20-9. Staðan í hálfleik var 37-26 og eftir 3. leikhluta var munurinn kominn upp í 15 stig, 58-43.

Sundsvall vann að lokum 13 stiga sigur, 81-68, en staðan er nú 2-1 í einvígi liðanna. Vinna þarf fjóra leiki til að komast í lokaúrslitin.

Næsti leikur liðanna er á þriðjudaginn á heimavelli Sundsvall.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×