Körfubolti

Mótherjar Polkowice skoruðu aðeins 36 stig

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Helena skoraði sex stig fyrir Polkowice í dag.
Helena skoraði sex stig fyrir Polkowice í dag. vísir/daníel
Helena Sverrisdóttir og stöllur hennar í CCC Polkowice eru komnar í 2-0 í einvíginu gegn Gorzow í átta-liða úrslitunum í úrslitakeppninni í Póllandi.

Polkowice vann öruggan sigur á Gorzow í dag, 36-61. Leikmenn Gorzow voru ekki með miðið stillt í leiknum en skotnýting liðsins var aðeins 23,2%.

Helena lék í tæpar 17 mínútur í dag, skoraði sex stig, tók eitt frákast og gaf tvær stoðsendingar. Hún hitti úr tveimur af fjórum skotum sínum innan teigs en öll þrjú skot hennar fyrir utan þriggja stiga línuna geiguðu.

Polkowice þarf nú aðeins einn sigur til að tryggja sér sæti í undanúrslitunum. Þriðji leikur Polkowice og Gorzow verður eftir viku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×