Körfubolti

Helena með níu stig í tapi gegn toppliðinu

Anton Ingi Leifsson skrifar
Vísir/Daníel
CCC Polkowice tapaði fyrir Wisla Kraków í pólsku úrvalsdeildinni í körfubolta kvenna í dag, en Helena Sverrisdóttir leikur með Polkowice.

Helena og félagar hennar lágu með 30 stiga mun, 77-47. Kraków var yfir, 41-28, í hálfleik - en gerðu út um leikinn í þriðja leikhluta. Þær unnu hann 16-4.

Helena skoraði níu stig, tók þrjú fráköst og tók fimm stoðsendingar á þeim tæpum 27 mínútum sem hún spilaði.

Polkowice er í fjórða sæti deildarinnar með 36 stig, en Wisla er á toppnum með 42 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×