Körfubolti

Helena heit fyrir utan | Sex þriggja stiga körfur

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Helena skoraði 20 stig fyrir Polkoweice í dag.
Helena skoraði 20 stig fyrir Polkoweice í dag. vísir/daníel
Helena Sverrisdóttir skoraði 20 stig þegar Polkowice vann 12 stiga sigur, 63-51, á MKK Siedlce í pólsku úrvalsdeildinni í körfubolta í dag.

Polkowice var einu stigi yfir í hálfleik, 31-30, og gaf svo í í seinni hálfleik.

Helena og stöllur hennar voru sjö stigum yfir, 50-43, eftir 3. leikhluta og unnu svo þann fjórða með fimm stigum, 63-51.

Helena setti niður sex af níu þriggja stiga skotum sem hún tók í leiknum. Íslenska landsliðskonan tók einnig þrjú fráköst.

Polkowice er í 3. sæti pólsku deildarinnar með 34 stig, fjórum stigum á eftir toppliði Wisla Can-Pack.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×