Körfubolti

Lið Hauks stríddi toppliðinu

Haukur Helgi Pálsson.
Haukur Helgi Pálsson. vísir/daníel
Lið landsliðsmannsins Hauks Helga Pálssonar, LF Basket, veitti toppliði sænska boltans, Norrköping Dolphins, mikla keppni í kvöld.

Norrköping lék á heimavelli og leiddi nánast allan leikinn en var þó alltaf aðeins skrefi á undan LF Basket sem neitaði að gefa sig.

Lokakafli leiksins var æsispennandi. Höfrungarnir voru tveim stigum á undan er 19 sekúndur lifðu leiks. LF Basket freistaði þess að vinna leikinn með þriggja stiga skoti en það geigaði.

Norrköping vann að lokum, 75-69, og er því enn á toppi deildarinnar og LF Basket er í fimmta sæti.

Haukur Helgi gat ekki leikið með liðinu í kvöld og munaði um minna enda hefur hann verið í lykilhlutverki þar í allan vetur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×