Körfubolti

Hörður næststigahæstur í naumu tapi

Hörður Axel í landsleik.
Hörður Axel í landsleik. vísir/daníel
Hörður Axel Vilhjálmsson átti fínan leik fyrir Mitteldeutscher er liðið tapaði naumlega, 79-72, fyrir Baskets Oldenburg í þýska körfuboltanum.

Hörður Axel skoraði 13 stig í leiknum og var næststigahæstur í sínu liði. Hann nýtti tvö af fjórum tveggja stiga skotum sínum og setti niður þrjá þrista í sjö tilraunum.

Hörður tók einnig tvö fráköst og gaf fjórar stoðsendingar að þessu sinni.

Hans lið situr því sem fastast í tólfta sæti deildarinnar en Oldenburg er í sjötta sæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×