Körfubolti

Jón Arnór spilaði lítið í sigri Unicaja

Anton Ingi Leifsson skrifar
Jón Arnór í leik með Unicaja.
Jón Arnór í leik með Unicaja. Vísir/Getty
Jón Arnór Stefánsson spilaði í rúmar þrjár mínútur í sigri Unicaja Malaga á Gipuzkoa í spænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í dag. Unicaja vann fjögurra stiga sigur, 76-72.

Unicaja byrjaði betur og leiddi 18-15 eftir fyrsta leikhluta. Heimamenn komu sterkir inn í annan leikhlutann og leiddu í hálfleik 38-34.

Jón Arnór og félagar voru stigi undir fyrir lokaleikhlutann, en unnu að lokum fjögurra stiga sigur 76-72.

Íþróttamaður ársins 2014 spilaði í rúmar þrjár mínútur og hitti úr hvorugu skoti sínu sem hann tók.

Unicaja er á toppnum með eins stigs forystu á Real Madrid sem á þó leik til góða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×