Körfubolti

Mikilvægur sigur Drekanna

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vísir/Valli
Íslendingaliðið Sundsvall Dragons hafði betur gegn Uppsala, 106-100, á heimavelli sínum í kvöld en fyrir leikinn voru liðin jöfn að stigum í 4.-6. sæti deildarinnar ásamt LF Basket.

Eftir leikinn situr Sundsvall því eitt í fjórða sætinu og er nú fjórum stigum á eftir toppliði Norrköping.

Hlynur Bæringsson og Jakob Sigurðarson skoruðu báðir 20 stig fyrir drekana í kvöld en Hlynur tók þar að auki sjö fráköst og Jakob sex. Ægir Þór Steinarsson skoraði fjögur stig og gaf fjórar stoðsendingar en Ragnar Nathanaelsson skoraði ekki á þeim stutta tíma sem hann spilaði í leiknum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×