Körfubolti

Stórhættulegt að vera klappstýra | Myndband

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Þessi klappstýra Tennessee-skólans tengist málinu ekkert.
Þessi klappstýra Tennessee-skólans tengist málinu ekkert. Vísir/Getty
Körfuboltalið Kentucky-háskólans hefur unnið alla leiki tímabilsins og vann nú síðast stórsigur á erkifjendum sínum í Tennessee.

Það voru þó ekki bara leikmenn Tennessee-skólans sem lentu illa í því í leiknum því ein klappstýra Tennessee-liðsins fékk einnig að finna fyrir því í leiknum.

Devin Booker kom nefnilega á fleygiferð í hraðaupphlaup en lét verja frá sér skot áður en hann flaug inn í miðjan hóp klappstýra Tennessee. Þar lenti hann á einnig klappstýrunni og þetta leit ekki vel út eins og sést hér fyrir neðan.

Devin Booker hafði áhyggjur á klappstýrunni eftir leik en hún heitir Kristen Huskey. Honum létti þó mikið þegar Kristen Huskey sagðist vera í lagi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×