Körfubolti

Naumur sigur gegn botnliðinu

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Haukur Helgi Pálsson í leik með íslenska landsliðinu.
Haukur Helgi Pálsson í leik með íslenska landsliðinu. Vísir
Haukur Helgi Pálsson var meðal markahæstu leikmanna LF Basket sem vann nauman sigur á Jämtland í sænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld.

Botnlið Jämtland, sem hefur aðeins unnið þrjá leiki af 28 í vetur, leiddi lengst af í kvöld en LF Basket komst yfir þegar fimm mínútur voru til leiksloka og unnu að lokum sex stiga sigur, 89-83.

Haukur Helgi skoraði sextán stig og var þriðji markahæsti leikmaður LF Basket í leiknum en hann nýtti  fimm skot af fjórtán utan af velli. Hann tók sex fráköst og gaf fimm stoðsendingar á þeim 32 mínútum sem hann spilaði.

LF Basket er í fjórða sæti með 38 stig en aðeins sex stig skilja að efstu sex lið deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×