Körfubolti

Sigrún Sjöfn næst stigahæst í sjötta sigri Höfrunganna í röð

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Sigrún Sjöfn Ámundadóttir fór til Svíþjóðar frá KR.
Sigrún Sjöfn Ámundadóttir fór til Svíþjóðar frá KR. vísir/stefán
Sigrún Sjöfn Ámundadóttir og stöllur hennar í Norrköping Dolphins unnu öruggan tólf stiga sigur á Akropol BBK, 61-49, í sænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld.

Sigrún Sjöfn, sem kom til Höfrunganna fyrir tímabilið frá KR, átti skínandi leik. Hún skoraði tíu stig og var næst stigahæst í liðinu á eftir Pernillu Hanson sem skoraði 13 stig.

Auk þess reif Sigrún niður níu fráköst og gaf fjórar stoðsendingar, en þetta var sjötti sigurinn í röð hjá Norrköping-liðinu í sænsku deildinni.

Liðið fór hægt af stað og vann fjóra af fyrstu tíu leikjum sínum, en er nú með 20 stig í fimmta sæti deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×