Haukur Helgi og félagar töpuðu á flautukörfu Tómas Þór Þórðarson skrifar 6. febrúar 2015 19:58 Haukur Helgi Karlsson. Vísir/Andri Marinó
Haukur Helgi Pálsson og félagar hans í LF Basket töpuðu á grátlegan hátt fyrir KFUM Nässjö, 64-63, á heimavelli í sænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld. Heimamenn voru einu stigi yfir þegar KFUM-liðið fór í lokasóknina, en það brenndi af sniðskoti þegar tvær sekúndur voru eftir. Því miður fyrir LF Basket náði leikmaður gestanna að pota boltanum ofan í með frákastinu og tryggði þeim sigurinn um leið og flautan gall. Haukur Helgi skoraði 10 stig, tók 7 fráköst og gaf 3 stoðsendingar fyrir LF Basket sem var búið að vinna fjóra leiki í röð fyrir tapið í kvöld. Fimm leikja sigurgöngu Drekanna í Sundsvall lauk einnig í kvöld þegar liðið tapaði á útivelli gegn ecoÖrebro, 101-91, en þegar sömu lið mættust fyrir þremur dögum síðan vann Sundsvall auðveldan sigur, 102-87. Jakob Örn Sigurðarson skoraði grimmt að vanda eða 18 stig og Hlynur Bæringsson nældi sér í enn eina tvennuna með 13 stigum og 12 fráköstum. Ægir Þór Steinarsson skoraði tvö stig en Ragnar Nathanaelsson kom ekkert við sögu í leiknum. Eini Íslendingurinn í sigurliði í kvöld var Sigurður Gunnar Þorsteinsson. Hans menn í Solna Vikings bundu enda á fimma leikja taphrinu sína með sigri á Jämtland Basket, 93-87, á heimavelli í kvöld. Sigurður Gunnar skoraði 15 stig og tók sex fráköst fyrir Solna sem er með 20 stigí sjöunda sæti deildarinnar. Sundsvall er með 34 stig og LF Basket 32 stig.
Körfubolti Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport McGregor fær ekki keppinaut fyrr en hann er leikfær á ný Sport „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Enski boltinn Norris á ráspól í Singapúr Formúla 1 „Það hlaut að koma að því“ Íslenski boltinn Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Handbolti Jafnt hjá PSG og Galatasaray vann stórleikinn í Tyrklandi Fótbolti Setja pressu á Barcelona með sigri Fótbolti Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Enski boltinn Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira