Körfubolti

Jón Arnór braut en ekkert dæmt | Sjáið ótrúlega jöfnunarkörfuna

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Jón Arnór í leik með íslenska landsliðinu
Jón Arnór í leik með íslenska landsliðinu vísir/anton
Barcelona lagði Unicaja eftir framlengingu í spænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í dag. Sjáið hvernig Barcelona tryggði sér framlenginu.

Alex Abrines jafnaði metin undir lok venjulegs leiktíma með ótrúlegri þriggja stiga körfu sem fór í spjaldið og ofan í. Heppnis karfa en átti hún að standa?

Þjálfari Unicaja var allt annað en sáttur því hann vildi meina að Jón Arnór Stefánsson hafði brotið á Abrines áður en hann fór í skotið og því hefði Abrines átt að fara á línuna og taka tvö víti og ekki átt færi á að jafna leikinn.

Sjáið atvikið hér að neðan og dæmi hver fyrir sig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×