Guðlast og tjáningarfrelsi Sigurvin Lárus Jónsson og Sunna Dóra Möller skrifar 13. janúar 2015 11:00 Trúarlegar skopmyndir eru ekki nýjar af nálinni. Elsta varðveitta myndin af Kristi á krossinum frá upphafsárum kristins átrúnaðar er hinn svokallaði Palatín kross, veggrista sem uppgötvaðist við fornleifauppgröft í Róm 1856. Þar getur að líta kristinn mann sem vegsamar róðukross en í stað kristsmyndar er asni á krossinum og undir stendur á grísku: „Alexamenos, tilbiður Guð sinn”. Upphafsár kristni og rabbínsk gyðingdóms á fyrstu öldum okkar tímatals einkenndust af ofsóknum í garð þessara trúarhópa og þeim fylgdu skopstælingar og áróður gegn þeim af hálfu Rómverja. Eyðilegging musterisins í Jerúsalem (70 e.Kr.) og loks borgarinnar sjálfrar (135 e.Kr.), komu til af því að Rómverjar börðu niður uppreisnir gyðinga sem voru andsvar við virðingarleysi í garð trúar þeirra og musteris. Útbreiðsla kristindómsins hélst í hendur við ofsóknir í garð hinna fyrstu kristnu en píslarvottar, sem mættu dauðdaga sínum af hendi Rómverja án mótspyrnu, vöktu athygli og andúð Rómverja. „Hermenn Krists beita ekki vopnum”, skrifuðu kirkjufeður á borð við Tertúllíanus til varnar píslarvottunum og ögruðu þannig karlmennskuhugsjónum Rómverja, sem upphófu dyggðugt líf hermannsins. Ofsóknir í garð trúarhópa eru enn við líði og þar eru fá trúarbrögð undanskilin. Gyðingar hafa mætt ofsóknum í gegnum aldirnar í Evrópu, Afríku og Asíu og til þessa dags hafa skopmyndir gegnt veigamiklu hlutverki við að kynda undir andúð í þeirra garð. Slíkar myndir voru algengar í Vestur-Evrópu á fyrri hluta 20. aldar og eru algengar í Mið-Austurlöndum í dag. Ofsóknir í garð kristinna manna eru í dag verstar í Norður-Afríku og Mið-Austurlöndum (Rupert Shortt: Christianophobia: A Faith Under Attack, 2013) og margir af trúarhópum Mið-Austurlanda, á borð við drúsa, alavíta og mandea, eru nú þegar í útrýmingarhættu (Gerard Russel, Heirs to Forgotten Kingdoms: Journeys into the Disappearing Religions of the Middle East, 2014). Skopmyndir hafa á Vesturlöndum ítrekað verið notaðar til að gera lítið úr og draga dár að trúarhefðum og þar er íslenskt samhengi ekki undanskilið. Í kjölfar hroðaverkanna í París hefur verið mikil umræða um tjáningarfrelsi og margir hafa sýnt samstöðu með hinum ögrandi skopteiknurum á tímaritinu Charlie Hebdo. Tjáningarfrelsi er hornsteinn lýðræðissamfélaga og því er eðlilegt að við sýnum öll tjáningafrelsinu samstöðu. Það frelsi felur í sér að styðja rétt þeirra til að tjá sig sem við erum í grunninn ósammála. Tjáningafrelsið á sér langa og sársaukafulla sögu í Frakklandi og skopstælingar hafa verið samofnar þeirri sögu frá upphafi. Einn ötulasti baráttumaður Frakka fyrir tjáningarfrelsi, Voltaire (1694 – 1778), var óvæginn gagnrýnandi trúarhefða og hann ritaði m.a. leikverk sem er ádeila á Múhammeð spámann, Le Fanatisme ou Mahomet. Verkið þykir enn umdeilt og komst í hámæli 2005 þegar franskir múslimar mótmæltu uppfærslu verksins í smábæ á landamærum Sviss. Tjáningarfrelsi og trúfrelsi eru stjórnarskrárvarin réttindi í Frakklandi en eins og víða á Vesturlöndum hefur m.a. spenna á milli trúarhópa og aukin hryðjuverkaógn leitt af sér skorður á því frelsi. Frakkar hafa gengið einna lengst Vesturvelda við að banna tjáningu trúar í hinu opinbera rými og eðli málsins samkvæmt hafa þær skorður beinst fyrst og fremst að múslimum. Árið 2004 var leitt í lög bann við trúartáknum í skólum, sem meinar múslimum að bera blæju og gyðingum bænakollu á meðan kristnir geta borið krossa innanklæða, og 2010 var samþykkt á franska þinginu reglugerð sem bannar höfuðföt sem hylja andlit, en henni var beint gegn búrkum. Charlie Hebdo tímaritið er reist á rústum eldra blaðs, Hara-kiri, sem var bannað fyrir að gera gys að andláti Charles De Gaulle fyrrum forseta landsins en það þótti ganga of langt. Ritstjórn þess varð síðan skotspónn Islamista eftir endurbirtingu skopmynda Jyllands-posten 2006, þar sem bætt var við skopmyndum af spámanninum, og 2011 var ráðist að blaðinu eftir birtingu skopmyndar af Múhammeð á forsíðu blaðsins, sem í kjölfarið varð heimsþekkt. Árásin í liðinni viku, þar sem fjöldi starfsmanna Charlie Hebdo létu lífið auk lögreglumanna sem gættu skrifstofu blaðsins, er árás á tjáningarfrelsið sjálft. Tjáningarfrelsi tryggir blaðinu réttinn til að gera grín að harmleikjum forseta jafnt sem trúarlegum spámönnum og þeim sem það blöskrar að mótmæla slíkum skopteikningum. Þingmenn Pírata lögðu í kjölfarið fram frumvarp um að fella úr gildi ákvæði um guðlast í íslenskum lögum, sem hótar þeim fangelsisvist sem „opinberlega dregur dár að eða smánar trúarkenningar eða guðsdýrkun löglegs trúarbragðafélags.” Það lagaákvæði samræmist ekki nútímahugmyndum um tjáningarfrelsi og það er skoðun okkar sem þetta rita að það eigi að fella úr gildi. Mikilvægt er að skoða samhliða því hvort núgildandi skorður á tjáningarfrelsi tryggi það að hatursáróður í garð trúarhópa sé bannaður með lögum en þar eru innflytjendur og minni trúfélög sérstaklega útsett. Í kjölfar hildarleiksins hafa margir sýnt á samfélagsmiðlum samstöðu með skopritinu með orðunum Je suis Charlie eða „Ég er Charlie”. Við viljum jafnframt taka undir með þeim sem sýnt hafa lögregluþjóninum og múslimanum Ahmed Merabet virðingu en hann lét lífið til að vernda tjáningarfrelsi tímarits sem opinberlega dró dár að og smámaði trúarkenningar hans. Með orðum sem eignuð eru Voltaire, „ég er ósammála því sem þú segir en ég mun fram í rauðan dauðann verja rétt þinn til þess að halda skoðun þinni fram.” Je suis Ahmed Merabet. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sigurvin Lárus Jónsson Mest lesið Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir Skoðun Nei fyrir komandi kynslóðir Ingibjörg H. Sverrisdóttir Skoðun Angan lótusblómsins Meyvant Þórólfsson Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason Skoðun Skoðun Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir skrifar Skoðun Nei fyrir komandi kynslóðir Ingibjörg H. Sverrisdóttir skrifar Skoðun Angan lótusblómsins Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Er ég að bregðast börnunum mínum með því að segja NEI? Monika Margrét Stefánsdóttir skrifar Skoðun Gamli sáttmálinn og sá nýi Aðalsteinn Már Þorsteinsson skrifar Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Gervigreind, gagnaver og tækifæri Íslands Eymundur Sigurðsson skrifar Skoðun Sveitirnar þagna Walter Fannar Kristjánsson skrifar Skoðun Áður en lengra er haldið Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Erum við of fljót að kenna samfélagsmiðlum um? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Börn læra ekki fyrir framtíð sem þau skynja ekki Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Danir, ESB og staða Íslands Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“? Guðríður Lára Þrastardóttir skrifar Skoðun Frá öllum til allra með nútímalegum sjúkratryggingum Sigurður H. Helgason skrifar Skoðun Tækifærið er núna Agnar H. Johnson skrifar Skoðun Einelti og samskiptahættir kvenna á Íslandi Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Hlaupið er búið - en láttu það ekki stoppa þig Sigrún Elva Einarsdóttir skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir skrifar Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson skrifar Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Samkeppniseftirlitið eitt og sér Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson skrifar Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar Skoðun Skipulag sem má ekki borga sig! Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar