Körfubolti

Craig með sigur í spennuleik

Anton Ingi Leifsson skrifar
Craig á hliðarlínunni.
Craig á hliðarlínunni. Vísir/Vilhelm
Craig Pedersen, landsliðsþjálfari Íslands í körfubolta, stýrði Svendborg Rabbits til sigurs í danska körfuboltanum í dag.

Svendborg Rabbits vann Copenhagen Wolfpack 81-78 í ansi spenanndi leik. Sterkur fjórði leikhluti lagði grunninn að sigrinum, en Svendborg var að tapa með þremur stigum fyrir hann.

Rabbit er eftir sigurinn í fjórða sæti deildarinnar með 20 stig og jafnar því Wolfpack að stigum í þriðja sæti deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×