Körfubolti

Sjöunda tap Harðar og félaga í röð

Anton Ingi Leifsson skrifar
Hörður Axel í landsleik.
Hörður Axel í landsleik. Vísir/Daniel
Hörður Axel Vilhjálmsson skoraði fjórtán stig fyrir Mitteldeutscher sem tapaði sínum sjöunda leik í röð, nú fyrir Ratiopharm Ulm í þýska körfuboltanum í kvöld. Lokatölur 86-82 í spennandi leik.

Mitteldeutscher var yfir í hálfleik, 44-38, en síðari hálfleikurinn varð liðinu að falli. Aftur spila þeir illa í þriðja leikhluta, en þeir töpuðu honum með sjö stigum 26-19. Lokatölur svo eins og fyrr segir 86-82

Hörður Axel spilaði rúman hálftíma og skoraði eins og fyrr segir fjórtán stig. Hann gaf einnig fimm stoðsendingar og tók þrjú fráköst.

Hörmulega hefur gengið hjá liðinu Mitteldeutscher, en tapið í kvöld var það sjöunda í röðinni. LIðin er í tíunda sæti deildarinnar en Ratiopharm Ulm er í því fjórða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×