Körfubolti

Fínn leikur Martins dugði ekki til

Anton Ingi Leifsson skrifar
Martin í baráttunni.
Martin í baráttunni. Vísir/Getty
Elvar Friðriksson, Martin Hermannsson og félagar þeirra í LIU Brooklyn töpuðu í kvöld fyrir Bryant á heimavelli í háskolaboltanum, 67-63.

Bryant voru sterkari í fyrri hálfleik og leiddu meðal annars í hálfleik 22-27. Brooklyn voru þó aldrei langt undan og Martin minnkaði muninn í 65-63 þegar þrettán sekúndur voru eftir.

Nær komust þeir ekki og Bryant unnu að lokum fjögurra stiga sigur, 67-63. Gerrell Martin var í sérflokki í liði Brooklyn en hann skoraði 27 stig.

Martin kom næstur með fjórtán stig en hann hitti úr fjórum af ellefu skotum sínum innan teigs og tveimur af fimm fyrir utan. Hann tók þar að auki sjö fráköst og gaf fimm stoðsendingar.

Elvar Friðriksson hafði hægt um sig, en hann skoraði tvö stig, tók þrjú fráköst og gaf þrjár stoðsendingar. Elvar hitti einungis úr einu skoti af níu innan teigs.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×