Körfubolti

Malaga heldur toppsætinu

Anton Ingi Leifsson skrifar
Jón Arnór í leik með Unicaja.
Jón Arnór í leik með Unicaja. Vísir/Getty
Unicaja Malaga heldur toppsætinu á Spáni eftir sigur á Rio Natura Monbus Obradoiro í spænska körfuboltanum. Lokatölur urðu 80-69.

Unicaja leiddu 40-29 í hálfleik og héldu forystunni út allan síðari hálfeikinn þrátt fyrir pressu frá gestunum í þriðja leikhluta.

Lokatölur eins og fyrr segir ellefu stiga sigur, 80-69.

Nýkjörinn íþróttamaður ársins, Jón Arnór Stefánsson, spilaði í rúmar fimm mínútur fyrir Uniacja og tók eitt frákast og stal einum bolta. Jón Arnór hefur verið að glíma við veikindi undanfaran daga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×