Körfubolti

Haukur Helgi og félagar byrja nýtt ár með tapi

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Haukur Helgi Pálsson.
Haukur Helgi Pálsson. vísir/andri marinó
Haukur Helgi Pálsson, landsliðsmaður í körfubolta, og félagar hans í LF Basket hófu nýtt ár í sænsku úrvalsdeildinni með tapi í kvöld.

LF Basket heimsótti Södertälje Kings og tapaði með tíu stiga mun, 99-89, en Kóngarnir voru betri allan tímann og unnu alla fjóra leikhlutana,

Haukur Helgi spilaði ríflega 22 mínútur í leiknum og skoraði ellefu stig auk þess sem hann tók sex fráköst og gaf tvær stoðsendingar.

LF Basket er eftir tapið í fjórða sæti sænsku úrvalsdeildarinnar með 22 stig líkt og þrjú önnur lið, en LF var búið að vinna fimm leiki í röð áður en kom að tapinu í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×