Væntanlegar kvikmyndir árið 2015 Freyr Bjarnason skrifar 21. desember 2014 17:00
Margar stórmyndir verða sýndar árið 2015. Líklega ríkir mest eftirvænting eftir Star Wars: The Force Awakens í leikstjórn J.J. Abrams. Á meðal annarra athyglisverðra mynda eru Taken 3 í leikstjórn Oliviers Megaton, Mad Max: Fury Road í leikstjórn George Miller, Mission: Impossible 5 í leikstjórn Christophers McQuarrie og Jurassic World sem Colin Trevorrow leikstýrir. Sjöunda Fast and the Furious-myndin verður sömuleiðis frumsýnd á næsta ári í leikstjórn James Wan. Álíka miklum látum má búast við í framhaldsmyndinni London Has Fallen í leikstjórn Babak Najafi.1 Star Wars The Force AwakensLeikstjóri J. J. Abrams.AðalhlutverkHarrison Ford, Mark Hamill, Carrie Fisher og Peter Mayhew.Sjöunda myndin í hinni ógurlega vinsælu Star Wars-seríu gerist um þrjátíu árum eftir atburðina í Return of the Jedi.Framleiðandi Walt Disney Studios Motion Pictures.Frumsýnd í N-Ameríku 18. desember.2 The MartianLeikstjóri Ridley Scott.Aðalhlutverk Matt Damon, Jessica Chastain og Kate Mara.Geimfarinn hjá NASA, Mark Watney (Damon), verður strandaglópur á rauðu plánetunni þegar áhöfnin í Ares 3-leiðangrinum neyðist til að yfirgefa lendingarstað sinn. Hann verður að lifa af þangað til Ares 4-leiðangurinn snýr aftur til Mars fjórum árum síðar.Framleiðandi Twentieth Century Fox Film.Frumsýnd í N-Ameríku 25. nóvember.3 Terminator GenisysLeikstjóri Alan Taylor.Aðalhlutverk Arnold Schwarzenegger, Emilia Clarke, Jason Clarke og Jai Courtney.Gerist árið 2029. Byltingarleiðtoginn John Connor (Jason Clarke) heldur áfram í stríði sínu gegn vélunum. Connor sendir Kyle Reese (Courtney) aftur í tímann til að bjarga lífi móður sinnar og tryggja eigin tilveru.Framleiðandi Paramount Pictures.Frumsýnd í N-Ameríku 1. júlí.4 Taken 3Leikstjóri Olivier Megaton.Aðalhlutverk: Liam Neeson, Maggie Grace, Famke Janssen og Forest Whitaker.Fyrrverandi CIA-maðurinn Bryan Mills (Neeson) er sakaður um að hafa myrt fyrrverandi eiginkonu sína Lenore (Janssen). Borinn röngum sökum, reynir að hann að nota hæfileika sína til að finna morðingjana og vernda dóttur sína.Framleiðandi 20th Century Fox.Frumsýnd í N-Ameríku 9. janúar.5 Mad Max: Fury RoadLeikstjóri George Miller.Aðalhlutverk: Tom Hardy, Charlize Theron, Nicholas Hoult og Hugh Keays-Byrne.Myndin gerist eftir ragnarök í eyðimörk þar sem mannkynið er orðið brjálað og berst hatrammlega innbyrðis um lífsins nauðsynjar. Max (Hardy) hittir Furiosu (Theron), konu sem á leið yfir eyðimörkina í leit að æskuslóðum sínum.Framleiðandi Warner Bros.Frumsýnd í N-Ameríku 15. maí.6 InfernoLeikstjóri Ron Howard.Aðalhlutverk Tom Hanks og Felicity Jones.Dulmálsfræðingurinn frá Harvard Robert Langdon (Hanks) vaknar upp á sjúkrahúsi í Flórens og man ekkert eftir síðustu dögum og ekki heldur hvernig hann komst til Ítalíu. Fljótlega lendir hann á flótta undan dularfullum morðingjum. Með honum í för er læknirinn Sienna Brooks (Jones). Þau reyna á sama tíma að leysa ráðgátu rithöfundarins Dante Alighieri úr bók hans The Divine Comedy.Framleiðandi Columbia Pictures. Frumsýnd í N-Ameríku 18. desember.7 PixelsLeikstjóri Chris Columbus.Aðalhlutverk Kevin James, Josh Gad og Peter Dinklage.Þegar geimverur mistúlka sígilda tölvuleiki frá 9. áratugnum og telja þá stríðsyfirlýsingu gegn sér, ákveða þær að ráðast á New York-borg. Hópur tölvunörda aðstoðar stjórnvöld við að glíma við geimverurnar.Framleiðandi Columbia Pictures. Frumsýnd í N-Ameríku 24. júlí.8 In the Heart of the SeaLeikstjóri Ron Howard. Aðalhlutverk: Chris Hemsworth, Cillian Murphy og Tom Hollander.Byggð á atburðunum árið 1820 þegar hvalveiðiskipið Essex lenti í hremmingum vegna risastórs hvals, sem varð til þess að skipið komst ekki í land í 90 daga. Atburðirnir veittu skáldinu Herman Melville innblástur við gerð bókar hans Moby Dick sem kom út 1851.Framleiðandi Warner Bros.Frumsýnd í N-Ameríku 11. mars.9 Mission: Impossible 5Leikstjóri Christopher McQuarrie.Aðalhlutverk Tom Cruise, Jeremy Renner og Simon Pegg.Fimmta myndin í Mission: Impossible-seríunni með Tom Cruise enn á ný í hlutverki njósnarans Ethans Hunt.Framleiðandi Paramount Pictures. Frumsýnd í N-Ameríku 25. desember.10 Jurassic WorldLeikstjóri Colin Trevorrow.Aðalhlutverk Chris Pratt, Bryce Dallas Howard og Vincent D'Onofrio.22 árum eftir atburðina í Jurassic Park er kominn risaeðluskemmtigarður á eyjuna Isla Nublar sem nefnist Jurassic World. Vísindamenn garðsins búa til erfðabreyttar risaeðlur til að fjölga gestum. Sú tilraun á eftir að mistakast herfilega.Framleiðandi Universal Pictures. Frumsýnd í N-Ameríku 12. júní.11 Furious 7Leikstjóri James Wan.Aðalhlutverk Vin Diesel, Jason Statham, Paul Walker, Dwayne Johnson og Michelle Rodriguez.Deckard Shaw (Statham) leitar hefnda gegn Dominic Toretto (Diesel) og fylgdarliði hans vegna dauða bróður hans.FramleiðandiUniversal Pictures.Frumsýnd í N-Ameríku 3. apríl.12 London Has FallenLeikstjóri Babak Najafi. Aðalhlutverk Gerard Butler, Aaron Eckhart og Morgan Freeman.Í jarðarför forsætisráðherra Bretlands kemst leyniþjónustumaðurinn Mike Banning (Butler) að því að drepa eigi alla heimsleiðtogana sem sækja jarðarförina.Framleiðandi Focus Features.Frumsýnd í N-Ameríku 2. október.
Bíó og sjónvarp Mest lesið „Þetta situr enn þá í mér í dag“ Lífið Tískan við þingsetningu: Þjóðlegur þriðjudagur Tíska og hönnun Ástin kviknaði á Kaffibarnum Lífið Heitustu trendin í haust Lífið Staðfesta þátttöku í Eurovision með fyrirvara um þátttöku Ísraela Lífið Jóhann Berg og Hólmfríður selja glæsihöllina á Arnarnesi Lífið Misvel tekið í gjörning Sverris: „Lokkandi beita fyrir niðrandi ummæli“ eða ást á tungumálinu Menning Dóttir Arons Kristins og Láru komin með nafn Lífið Segist ekki dauður heldur „sprelllifandi“ Lífið „Pabbi Rúríks“ lét sig ekki vanta Lífið Fleiri fréttir Tjáði sig um ástarsambandið sem splundraði tveimur hjónaböndum Sophie Turner verður Lara Croft Strax búinn að tilkynna Ofurmenni morgundagsins Kim Novak heiðursgestur RIFF Barðist við tárin yfir fimmtán mínútna lófataki Langþráður draumur að halda hinsegin kvikmyndahátíð ACT4 í samstarf við alþjóðlegt kvikmyndaver Saga og Steindi í nýrri gamanþáttaröð Ástin sem eftir er framlag Íslands til Óskarsverðlauna Sopranos-stjarna látin Frumsýning á Vísi: Eldgos, hamfarir og ást í kitlu fyrir Eldana Woody Allen aðalnúmerið hjá Rússum Hlynur Pálmason með þrennu í San Sebastian Sælkerabíó á RIFF: Sjónræn matarveisla á Plöntunni og smakkbíó á Ramen Momo Sannfærði Balta um að snúa aftur Fróði og Gandálfur snúa aftur í leitinni að Gollri Terence Stamp látinn Auglýsa eftir innsendingum til íslensku sjónvarpsverðlaunanna Nýr Rambo fundinn Óvænt nöfn á könnu Köngulóarmannsins Sjá meira
Misvel tekið í gjörning Sverris: „Lokkandi beita fyrir niðrandi ummæli“ eða ást á tungumálinu Menning
Misvel tekið í gjörning Sverris: „Lokkandi beita fyrir niðrandi ummæli“ eða ást á tungumálinu Menning