Ýr prjónar undir merkinu Ýrúrarí en á Menningarnótt mun hún sýna sitt stærsta verkefni til þessa.
„Þetta er peysa með hettu sem þú getur klæðst og lagst niður og þá ertu eins og steinn,“ lýsir Ýr en hún vann peysuna í Skapandi sumarstörfum í Kópavogi og sýndi hana á lokasýningu sumarsins.
„Ég lagðist þá bara niður í fimm mínútur og hafði algjöra þögn,“ segir Ýr en verkefnið heitir Ég er steinn. „Ég held að margir lendi í þessu, það er þægilegt að geta horfið í smástund og verið steinn.“

Sýningin verður í búðinni ANNA MARIA á Skólavörðustíg en í næstu viku mun ljósmyndarinn Magnús Andersen taka ljósmyndir af verkefninu til þess að sýna fram á virkni peysunnar og munu þær ljósmyndir einnig verða til sýnis á sýningunni.
Ungi hönnuðurinn ætlar svo sannarlega ekki að slá slöku við í vetur en hún mun hefja nám í textílhönnun við Myndlistarskólann í Reykjavík, auk þess sem hún ætlar að opna netverslun fyrir Ýrúrarí.
„Ég ætla allavega að reyna að láta þetta ganga,“ segir Ýr. „Spurning hvort að fólk sé tilbúið að ganga í svona skrítnum fötum.“