Saknaði Íslands Kristinn Páll Teitsson skrifar 3. júní 2014 06:00 Þóra B. Helgadóttir samdi við Fylki í gær. Fréttablaðið/Stefán
Fylkir fékk gríðarlegan styrk fyrir átökin sem framundan eru í Pepsi-deild kvenna þegar Þóra B. Helgadóttir samdi við félagið. Þóra var farin að sakna þess að búa á Íslandi. „Ég held að það sé óhætt að segja það að atvinnumannaferli mínum sé að ljúka. Ég er búin að vera lengi í atvinnumennsku og mig langar að búa aftur heima og vera nær fjölskyldunni,“ sagði Þóra í samtali við Fréttablaðið í gær. Átta ár eru síðan Þóra lék síðast leik með íslensku félagsliði. „Þetta hefur verið frábær tími og ég hef náð nánast öllum mínum markmiðum. Ég horfi stolt til baka á ferilinn,“ sagði Þóra sem samdi við nýliða Fylkis þrátt fyrir áhuga annarra liða. „Ég fór með opnum hug inn í viðræður við íslensku liðin og talaði við öll þau lið sem höfðu samband af fullri alvöru. Þau höfðu öll á sinn hátt áhugaverða hluti fram að færa en á endanum valdi ég Fylki. Ég hef ekki séð til liðsins en það töluðu allir sem ég ræddi við vel um Fylkisliðið,“ en Þóra lék á árum áður lengst af með Breiðabliki. „Ég heyrði í Blikum þar sem það er mitt uppeldisfélag. Við vorum algerlega sammála um að tímasetningin hentaði hvorugu að þessu stöddu. Það verður spennandi að prófa að spila með nýju liði á Íslandi, fara í annað umhverfi en maður þekkir,“ segir Þóra en hún á þrjá leiki eftir með félagsliði sínu áður en hún snýr aftur heim. „Vonandi endum við þetta á þremur sigrum áður en nýtt ævintýri tekur við,“ sagði Þóra brött.
Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið „Hvernig getur þetta gerst á fótboltaleik?“ Fótbolti Ægir Þór óttaðist að ferlinum væri lokið Körfubolti Svíar syrgja handboltahetju: „Svo djöfullega ósanngjarnt“ Handbolti Messi keypti spænskt fótboltafélag Fótbolti Alexander Helgi frá KR í Njarðvík Íslenski boltinn Vignir Vatnar sneri upp á Evrópumeistara Sport Cristiano Ronaldo ældi inn í klefa Fótbolti Eiður Smári með eldræðu um Chelsea: „Ég hefði ekki sofið í fjóra daga“ Enski boltinn Tyrkneska hlaupatilraunin mistókst Sport Mark Alberts ekki nóg og Crystal Palace upplifði sögulegt kvöld Fótbolti Fleiri fréttir Alexander Helgi frá KR í Njarðvík Stuðningsmenn kosta Þór og Víking hundruð þúsunda Gabríel Snær seldur til Svíþjóðar Launin ekki aðalatriði og bónus að hafa fjölskylduna nálægt „Ég get ekki breytt þessu“ Oliver keyptur til KA „Hleyp jafn hratt og Mikael“ Arnar sleit sin í hné og bíður svara varðandi framhaldið Hjartað brotið, hent eins og hverri annarri kúkableyju Ekki tapað fyrir Keflavík í 24 leikjum í röð „Þetta er bara löglegt mark sem er tekið af KA“ Segir ekkert vit í afsökunum Valsmanna Sjáðu öll mörkin úr fyrstu umferð Bestu deildarinnar „Dreymdi að ég myndi skora tvö“ „Ef hann lítur á þetta sem leikaraskap þá er hann á rangri hillu“ Uppgjörið: Fram - ÍA 3-3 | Chopart bjargaði stigi eftir rússibanareið Uppgjörið: KA - Stjarnan 2-3 | Flugu heim með stigin þrjú eftir fjörugan leik „Gáfum ódýr mörk“ „Frammistaðan verðskuldaði klárlega stig“ Áttu flug beint eftir leik og komust ekki í viðtöl „Sviðskvíðinn hvarf aldrei hjá lærisveinum mínum“ „Fannst þeir ekki eiga séns í okkur hérna í seinni hálfleik“ Uppgjörið: Valur - Þór Ak. 1-2| Nýliðarnir sóttu þrjú stig á Hlíðarenda Uppgjörið: KR - Keflavík 3-2 | Alexander Rafn fullkomnaði endurkomu KR-liðsins Uppgjörið: ÍBV - FH 1-1 | Tryggði stig í fyrsta leik „Deildin aldrei verið sterkari en í ár“ Bikarmeistararnir áfram eftir danskt sigurmark í lokin „Ekki gott fyrir hin liðin“ „Verður þetta ekki bara geðveiki?“ Segir að Ekroth verði að gera betur Sjá meira