Actavis kaupir Silom Medical í Taílandi Óli Kristján Ármannsson skrifar 2. apríl 2014 14:20 Töflur á færibandi. Mynd/Actavis
Samheitalyfjafyrirtækið Actavis hefur fest kaup á tælenska lyfjafyrirtækinu Silom Medical með peningagreiðslu upp á 100 milljónir Bandaríkjadala, eða sem svarar 11,3 milljörðum króna. Silom Medical er eitt af helstu samheitalyfjafyrirtækjum Taílands, að þvi er fram kemur í tilkynningu Actavis og sér yfir 4.400 sjúkrastofnunum og lyfsölum í landinu fyrir yfir 25 lyfjum í margvíslegu formi. Með kaupunum er Actavis þegar á meðal fimm helstu samheitalyfjaframleiðenda Taílands og leiðandi í framleiðslu augnlyfja og lyfja vegna öndunarsjúkdóma. Haft er eftir Business Monitor International að lyfjageirinn í Taílandi velti um 4,3 milljörðum dala (484 milljarðar króna) og sé vaxandi. „Búist er við að lyfsala í landinu aukist að jafnaði um sem nemur átta prósentum á ári og verði komin í um það bil níu milljarða dala [ yfir 1.000 milljarða króna] árið 2022.
Mest lesið Kennari kveður: „Allt gekk auðvitað út á rúntinn“ Atvinnulíf Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Viðskipti innlent Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna Viðskipti innlent Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Viðskipti innlent Skilur að fólk hafi áhyggjur af falli Bitcoin en er sjálfur rólegur Viðskipti erlent Stærsti Ímarkdagurinn í 40 ár: Alþjóðlegar stjörnur markaðsmála mæta Samstarf EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Platar sjálfan sig á morgnana til að líða geðveikt fersk Atvinnulíf Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Viðskipti innlent „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skilur að fólk hafi áhyggjur af falli Bitcoin en er sjálfur rólegur Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira