Það er einn leikur eftir hjá nýkrýndum deildarmeisturum KR-inga en þjálfari liðsins, hinn 30 ára gamli Finnur Freyr Stefánsson, er þegar búinn að endurskrifa söguna. Enginn þjálfari hefur gert betur á sínu fyrsta tímabili í efstu deild.
KR-ingar hafa unnið 20 leiki af 21 í Dominos-deild karla á tímabilinu og þeir fengu deildarmeistarabikarinn afhentan eftir 101-78 sigur á Val í gær. Finnur var aðstoðarþjálfari Helga Más Magnússonar seinni hluta síðasta tímabils og stjórnaði liðinu þá af bekknum. Hann tók síðan við KR-liðinu í haust og hefur liðið verið í sérflokki í deildinni í vetur.
Keflvíkingurinn Sigurður Ingimundarson var búinn að eiga metið í sautján ár eða síðan hann tók það af bróður sínum, Val Ingimundarsyni, og Danny Shouse, sem höfðu þá átt það saman í áratug. Njarðvíkurliðið vann sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil árið 1981 með Shouse sem spilandi þjálfara en Ingi Gunnarsson var þá liðstjóri. Valur var einnig spilandi þjálfari.
Finnur Freyr á þó ekki möguleika á því að jafna titlasöfnun Sigurðar á sínu fyrsta tímabili en Keflavíkurliðið vann fjórfalt veturinn 1996-97. Keflavík vann Grindavík 3-0 í lokaúrslitum um Íslandsmeistarabikarinn, vann KR 77-66 í bikarúrslitaleiknum, vann KR 107-101 í úrslitaleik Fyrirtækjabikarsins og vann einnig deildarmeistaratitilinn með fjögurra stiga mun. Keflavíkurliðið vann alls 37 af 40 leikjum sínum þennan vetur.
Þetta er annað árið í röð sem þjálfari kemst inn á þennan lista því Grindvíkingar unnu 81,8 prósent leikja sinna á síðasta tímabili þegar Sverrir Þór Sverrisson stjórnaði karlaliði í fyrsta sinn í efstu deild. Líkt og þeir Sigurður og Finnur Freyr hafði Sverrir Þór áður þjálfað kvennalið í efstu deild og enginn þeirra var því „algjör“ nýliði í þjálfun.
Finnur tók metið af Sigga Ingimundar
Tengdar fréttir
Vonir ÍR-inga dóu í tapi í tvíframlengdum leik - úrslit kvöldins í körfunni
ÍR-ingar eiga ekki lengur möguleika á sæti í úrslitakeppni Dominos-deildar karla í körfubolta eftir þriggja stiga tap fyrir Keflavík, 126-123, í mögnuðu tvíframlengdum leik í TM-höllinni í Keflavík í kvöld.
Tuttugasti sigur KR í vetur og deildarmeistaratitilinn á loft - myndir
KR-ingar fengu afhentan deildarmeistaratitilinn í kvöld eftir öruggan 101-78 sigur á botnliði Vals en þetta var níundi sigur Vesturbæjarliðsins í röð og tuttugasti deildarsigur liðsins á leiktíðinni.
Umfjöllun og viðtöl: Njarðvík - Snæfell 83-81 | Elvar tryggði Njarðvík fjórða sætið
Elvar Már Friðriksson tryggði Njarðvík 83-81 sigur á Snæfelli í Ljónagryfjunni í kvöld en sigurkarfa hans skömmu fyrir leikslok gulltryggði ekki bara sigurinn heldur einnig fjórða sætið í Dominos-deildinni og þar með heimavallarrétt í úrslitakeppninni.