Körfubolti

Selfie-prik og appelsína bestu jólagjafirnar

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Íslensku leikmennirnir hjá Sundsvall Dragons í sænsku úrvalsdeildinni voru ánægðir með jólagjafirnar sem þeir fengu að þessu sinni.

Farið var yfir uppáhalds jólagjafir leikmanna liðsins í myndbandinu sem má sjá hér fyrir neðan en alls eru fjórir Íslendingar á mála hjá félaginu.

Jakob Sigurðarson var þakklátur fyrir að eiga glatt og hamingjusamt barn og Ragnar Nathanaelsson fékk mynd af fjölskyldu sinni sem hann var ánægður með.

Uppáhaldsjólagjöf Ægis Þórs Steinarssonar var svokallað  „selfie-stick“ en Hlynur Bæringsson var ánægðastur með gjöf sem hann fékk frá pabba sínum.

„Hann gaf mér appelsínu í poka. Það var indælt,“ sagði hann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×