Körfubolti

Helena og stöllur hennar töpuðu fyrir toppliðinu

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Helena og stöllur hennar máttu þola tap gegn Wisła Can-Pack Kraków.
Helena og stöllur hennar máttu þola tap gegn Wisła Can-Pack Kraków. vísir/daníel
Helena Sverrisdóttir og stöllur hennar í CCC Polkowice þurftu að sætta sig við tap gegn toppliði Wisła Can-Pack Kraków í pólsku úrvalsdeildinni í körfubolta í dag.

Það var lítið skorað í leik dagsins, en góður fyrsti leikhluti hjá Wisła Can-Pack Kraków gerði útslagið.  Staðan eftir hann var 8-19, Kraków í vil, og þrátt fyrir góða baráttu Polkowice náði liðið ekki að brúa þetta bil.

Lokatölur 51-59, Kraków í vil, en liðið er taplaust á toppi pólsku deildarinnar.

Helena hafði hægt um sig í dag; skoraði fjögur stig, tók fimm fráköst og gaf þrjár stoðsendingar. Polkowice er í þriðja sæti deildarinnar með 19 stig eftir 11 leiki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×