Körfubolti

Sigrún öflug í sigurleik

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vísir/Stefán
Sigrún Sjöfn Ámundadóttir skoraði sautján stig þegar lið hennar, Norrköping Dolphins, hafði betur gegn Mark Basket í sænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld, 76-69.

Sigrún lék í rúma 31 mínútu, tók sex fráköst, stal boltanum fjórum sinnum og gaf eina stoðsendingu. Hún var næststigahæst í liði Norrköping.

Leikurinn var jafn og spennandi en eftir að Norrköping náði forystunni snemma í fjórða leikhluta lét liðið hana aldrei aftur af hendi.

Liðið er komið upp í sjötta sæti deildarinnar þar sem það er með tíu stig. Mark Basket er í fjórða sætinu með tólf stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×