Þórey: Ég bjóst við þeim betri 3. desember 2014 21:47 Stelpurnar glaðar eftir leik. vísir/ernir „
Ég er mjög sátt. Við spiluðum mikið betri leik en gegn Ítalíu hérna heima. Það var mikið betri stemning og mikið betra flot á sóknarleiknum og mikið betri hraðaupphlaup,“ sagði Þórey Rósa Stefánsdóttir hægri hornmaður Íslands eftir sigurinn á Makedóníu í kvöld. „Við duttum niður í svolítið kæruleysi inn á milli í vörninni en heilt yfir er ég mjög sátt. „Við bættum sóknarleikinn og gerðum færri mistök en gegn Ítalíu. Það var betri andi líka og meiri kraftur í öllu sem við gerðum,“ sagði Þórey sem hrósaði Karenu Knútsdóttur í hástert en Karen er búin að skora 34 mörk í leikjunum þremur í forkeppni heimsmeistaramótsins. „Hún er ótrúleg. Frábær leikmaður. Hún er með sjálfstraustið í botni og það er vel gert að halda áfram. Hún á ekki bara einn góðan leik, hún heldur bara áfram. Það sýnir hvaða klassa leikmaður hún er.“ Ísland á einn leik eftir þó sætið í umspilinu sé tryggt. Hann er úti í Makedóníu á laugardaginn. „Ætli við leggjum þetta ekki svipað upp og þennan leik. Við viljum vinna þann leik líka. Við erum með betra lið en Makedónía. Ég bjóst við þeim betri. „Það er líka fyrir okkur sjálfar að vera ekki að tapa einhverjum leikjum sem við eigum ekki að tapa,“ sagði Þórey sem ætlar sér ekkert annað en sigur úti í Makedóníu á laugardaginn.
Íslenski handboltinn Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Breytingar boðaðar í Garðabæ Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Biður kínversku þjóðina afsökunar Fótbolti Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Íslenski boltinn Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Fleiri fréttir Arnór með ellefu og Valsmenn nálgast toppinn Strax aftur á sigurbraut Leik lokið: Selfoss - Fram 29-35 | Fram hafði betur í botnslagnum Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum Ómar Ingi og félagar nálgast toppsætið eftir sigur á Hauki Reynir Þór með stórleik í þýsku Bundesligunni Ísland-Pólland 34-35 | Naumt tap á móti Pólverjum FH-ingar sóttu tvö stig í Kórinn Valsmenn með þriðja sigurinn í röð HSÍ gat ekki styrkt Sérsveitina: Fékk yfir þrjár milljónir í fyrra Sérsveitin ekki á HM: „Það eru allir að halda að sér höndum“ Fyrrverandi Stjörnumaður lést fertugur að aldri Uppgjörið: KA-Afturelding 32-28 | KA-menn upp í annað sætið Viktor Gísli og Baldur Fritz frábærir í Meistaradeildinni Reynir Þór með fimm marka leik í Meistaradeildinni Íslensku stelpurnar unnu Pólverja eftir flotta endurkomu Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Sjá meira