Körfubolti

Jakob Örn hetja Sundsvall

Jakob Örn í leik með Sundsvall.
Jakob Örn í leik með Sundsvall. vísir/vallsy
Íslendingaliðin Sundsvall og Solna voru í eldlínunni í sænska körfuboltanum í kvöld.

Sundsvall lenti í miklum slag gegn Borås. Jafnt var á með liðunum, 88-88, er tíu sekúndur voru eftir af leiknum.

Jakob Sigurðarson setti þá niður þriggja stiga körfu og kom Sundsvall yfir. Borås svaraði fyrir sig en Jakob afgreiddi leikinn á vítalínunni. Lokatölur 95-93.

Jakob skoraði 18 stig í leiknum og tók 3 fráköst. Hlynur Bæringsson skoraði 10 stig, tók 8 fráköst og hgaf 2 stoðsendingar. Ægir Þór Steinarsson skoraði 9 stig og tók 3 fráköst.

Sigurður Gunnar Þorsteinsson og félagar í Solna steinlágu síðan gegn Hauki Helga Pálssyni og félögum í LF Basket, 84-101, á heimavelli sínum.

Sigurður skoraði 6 stig, tók 2 fráköst og gaf 3 stoðsendingar. Haukur Helgi skoraði 17 stig.

Sundsvall er komið í annað sæti deildarinnar en LF Basket í sjötta og Solna í sjöunda sæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×