Körfubolti

Annar sigur Kristófers Acox og félaga í Furman

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Kristófer Acox í leik með KR
Kristófer Acox í leik með KR vísir/vilhelm
Kristófer Acox var að vanda í byrjunarliði körfuboltaliðs Furman háskólans sem lagði Samford 74-64 í kvöld. Þetta var annar sigur Fruman í sex leikjum.

Acox skoraði þrjú stig og tók 10 fráköst en hann hitti úr öðru af tveimur skotum sínum utan af velli og öðru af tveimur vítaskotum sínum. Furman var 28-25 yfir í hálfleik.

Á sama tíma skoraði Hildur Björg Kjartansdóttir 8 stig og tók 4 fráköst fyrir kvennalið Texas-Pan American háskólans sem tapaði 60-57 fyrir Texas A&M-CC.

Texas-Pan American hefur unnið 6 af 11 leikjum sínum í vetur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×