Körfubolti

Jón Arnór og félagar halda í við Real Madrid og Barcelona

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Jón Arnór Stefánsson.
Jón Arnór Stefánsson. vísir/daníel
Jón Arnór Stefánsson og félagar í Unicaja Málaga unnu níu stiga heimasigur á Montakit Fuenlabrada, 72-63, í spænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld.

Jón Arnór skoraði fjögur stig, en hann hitti af tveimur af fjórum skotum úr teignum en brenndi af báðum þriggja stiga skotum sínum. Þá tók hann eitt frákast á þeim 14 mínútum sem hann spilaði.

Ryan Toolson var stigahæstur heimamanna með 14 stig en annars dreifðist stigaskot Málaga-liðsins mjög vel.

Unicaja er í þriðja sæti spænsku úrvalsdeildarinnar með átta sigra og eitt tap líkt og stórveldið Barcelona, en Real Madrid er á toppnum með fullt hús eftir níu leiki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×