Komast Þórsarar í átta stiga hópinn í kvöld? Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 21. nóvember 2014 17:30 Grétar Ingi Erlendsson. Vísir/Vilhelm
Þórsarar úr Þorlákshöfn taka á móti Skallagrími í kvöld í eina leik Dominos-deildar karla í körfubolta og Þórsarar geta hoppað upp um mörg sæti með sigri. Leikurinn fer fram í Icelandic Glacial höllinni og hefst klukkan 19.15. Fjögur lið eru nú með átta stig í sætum þrjú til sex í Dominos-deildinni (Keflavík, Stjarnan, Haukar og Njarðvík) en Þórsarar bætast í þennan hóp takist þeim að vinna leikinn á mót Sköllunum í kvöld. Þá væru fimm lið jöfn að stigum í þriðja til sjöunda sæti deildarinnar. Þórsliðið hefur unnið báða leiki sína gegn hinum liðunum með átta stig (unnu Keflavík 80-75 og Hauka 109-94) og munu því koma vel út þegar innbyrðisviðureignirnar raða liðunum upp í sætin takist þeim á annað borð að komast upp í átta stiga hópinn. Skallagrímsmenn unnu sinn fyrsta leik í vetur í síðasta leik þegar Stjarnan kom í heimsókn í Borgarnes en Borgnesingar hafa tapað tveimur fyrstu útileikjum tímabilsins með 35 stigum að meðaltali. Nú er það undir þeim komið að sýna sig og sanna utan Fjóssins. Þetta verður kannski kvöld Grétars Inga Erlendssonar sem lék með Skallagrími í fyrra en er nú aftur kominn heim í Þorlákshöfn.Grétar tapaði báðum leikjunum á móti Þór þegar hann spilaði með Skallagrími í fyrra en hann skorað 15,0 stig og tók 5,5 fráköst að meðaltali á 26,6 mínútum í þeim. Grétar þyrstir því í sigurleik í kvöld.
Dominos-deild karla Mest lesið Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Slot rekinn frá Liverpool Enski boltinn Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti „Betra liðið tapaði” Fótbolti „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ Íslenski boltinn „Ég er rígmontinn af þeim” Fótbolti „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Elvar Már óvænt til Tenerife út tímabilið Pirraður yfir því hvernig Baldur yfirgaf Stjörnuna Grét alla Reykjanesbrautina Sjá meira