Körfubolti

Haukur Helgi og félagar töpuðu í framlengingu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Haukur Helgi Pálsson.
Haukur Helgi Pálsson. Vísir/Anton
Haukur Helgi Pálsson og félagar hans í LF Basket töpuðu í sænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld eftir æsispennandi leik þar sem úrslitin réðust ekki fyrr en í framlengingu.

Umeå Basket vann leikinn á endanum 103-99 eftir að hafa unnið framlenginguna 15-11 en staðan var 88-88 eftir venjulegan leiktíma.

Haukur Helgi var með 9 stig, 3 fráköst, 2 stoðsendingar og 2 stolna bolta á 31 mínútu í leiknum. Haukur skoraði eina körfu í framlengingunni en hann setti niður eina þriggja stiga skot sitt fyrr í leiknum.

LF Basket er í 6. sæti deildarinnar en Umeå Basket fór úr níunda sæti upp í það sjöunda með þessum góða heimasigri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×