Körfubolti

Lifði af tvö flugslys og byrjaður að spila körfubolta

Austin ásamt frænda sínum sem hefur hugsað um hann eftir að Austin missti alla sína nánustu.
Austin ásamt frænda sínum sem hefur hugsað um hann eftir að Austin missti alla sína nánustu. vísir/ap
Eftir að hafa lifað af tvö flugslys og verið í dái í átta vikur er Austin Hatch farinn að spila með einu besta háskólakörfuboltaliði Bandaríkjanna.

Saga Hatch er engri lík. Hann samdi við Michigan-háskólann um að spila með þeim árið 2011. Aðeins tíu dögum síðar lenti hann í flugslysi ásamt föður sínum og stjúpmóður.

Þau létust bæði en Hatch slasaðist mikið og var í dái í átta vikur.

Þetta var annað flugslysið sem Hatch lenti í. Átta árum áður fórust móðir hans og tvö systkini í öðru flugslysi. Hann er því búinn að missa alla sína nánustu í flugslysum sem hann lifði sjálfur af. Faðir hans var flugmaðurinn í báðum slysum.

Þrátt fyrir mikið mótlæti hefur Hatch haldið áfram og í nótt skoraði hann sín fyrstu stig fyrir Michigan í æfingaleik. Hann skoraði af vítalínunni 12 sekúndum fyrir leikslok og áhorfendur stóðu upp fyrir honum.

„Mig er búið að dreyma um þetta augnablik síðan ég var lítill drengur.  Eftir allt sem á undan er gengið var þetta mjög sérstakt augnablik í mínu lífi," sagði Hatch eftir leik.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×