Körfubolti

Jakob og Hlynur með mikilvægar körfur í spennuleik

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Jakob Örn Sigurðarson.
Jakob Örn Sigurðarson. Vísir/Valli
Sundsvall Dragons hélt sigurgöngu sinni áfram í sænska körfuboltanum í kvöld þegar liðið vann eins stigs sigur á Jämtland Basket, 99-98, eftir framlengdan leik í 11. umferð sænsku úrvalsdeildarinnar í körfubolta.

Jakob Örn Sigurðarson skoraði 21 stig fyrir Drekana sem hafa nú unnið fimm síðustu leiki sína en liðið vann "bara" tvo af fyrstu sex leikjum sínum á leiktíðinni. Jakob skoraði alls fjóra þrista í leiknum.

Hlynur Bæringsson skoraði fimm af 17 stigum sínum í framlengingunni þar á meðal körfuna sem kom Sundsvall Dragons í 99-96. Hlynur var einnig með 9 fráköst og 4 stoðsendingar.

Ægir Þór Steinarsson var með 9 stig, 3 fráköst og 3 stoðsendingar á 30 mínútum en Ragnar Nathanaelsson náði ekki að skora á þeim þremur mínútum sem hann spilaði.

Íslensku leikmennirnir skoruðu samanlagt sjö af tólf þriggja stiga körfum Drekanna í leiknum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×