Körfubolti

Sigrún öflug í góðum útisigri

Sigrún Sjöfn í leik með KR.
Sigrún Sjöfn í leik með KR. vísir/stefán
Sigrún Sjöfn Ámundadóttir átti frábæran leik fyrir Norrköping Dolphins í sænska körfuboltanum í kvöld.

Sigrún Sjöfn skoraði 13 stig og var stigahæst í sínu liði en það vann leikinn gegn Akropol, 61-65.

Hún tók enn fremur fjögur fráköst í leiknum. Hún setti niður þrjú af sex tveggja stiga skotum sínum og tvö af fjórum þriggja stiga skotum fóru einnig niður.

Höfrungarnir rifu sig upp í efri hluta deildarinnar með þessum sigri en Akropol er í botnbaráttu í upphafi móts.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×