Körfubolti

Stórleikur Hauks Helga dugði ekki til

Haukur Helgi Pálsson.
Haukur Helgi Pálsson. vísir/daníel
Tveir Íslendingar voru í eldlínunni í sænska körfuboltanum í kvöld og stóðu sig vel.

Haukur Helgi Pálsson var í banastuði fyrir LF Basket gegn KFUM Nässjö. Hann skoraði 30 stig og tók 10 fráköst en það dugði ekki til sigurs því lið hans tapaði, 83-76.

Sigurður Gunnar Þorsteinsson var stigalaus í síðasta leik í deildinni en hann reif sig upp í kvöld. Sigurður Skoraði 8 stig og tók 7 fráköst er lið hans, Solna Vikings, tapaði, 107-101, eftir framlengdan leik gegn Umeå.

KFUM og Umeå komust upp að hlið Solna í kvöld en þau eru í sætum sjö til níu í deildinni. LF Basket er í fimmta sæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×