Körfubolti

Helena stigahæst er Polkowice vann sinn fimmta sigur

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Helena átti góðan leik fyrir Polkowice.
Helena átti góðan leik fyrir Polkowice. Vísir/Daníel
Helena Sverrisdóttir og stöllur hennar í pólska körfuboltaliðinu Polkowice unnu 11 stiga sigur, 73-62, á Energa Torun í dag.

Helena var stigahæst í liði Polkowice með 21 stig, en hún tók auk þess sjö fráköst, gaf þrjár stoðsendingar og stal fjórum boltum. Haukakonan fyrrverandi hitti úr fjórum skotum af tíu utan af velli og nýtti 11 af 15 vítaskotum sínum.

Polkowice er í öðru sæti pólsku deildarinnar, en liðið hefur unnið alla fimm leiki sína á tímabilinu. Wisla Krakow situr í toppsætinu en liðið hefur leikið einum leik fleira.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×