Körfubolti

Haukur tapaði fyrir toppliðinu

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vísir/Daníel
LF Basket tapaði í kvöld fyrir Borås Basket í sænsku úrvalsdeildinni í körfubolta, 92-70. Sigur heimamanna var öruggur eins og tölurnar bera með sér.

Haukur Helgi spilaði í rúmar 30 mínútur í kvöld og skoraði tvö stig og tók fimm fráköst. Hann nýtti alls eitt af fimm skotum utan af velli og gaf tvær stoðsendingar.

Borås er á toppi deildairnnar með fjórtán stig en LF Basket er í fimmta sætinu með átta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×