Ólína yfirgefur Val eins og Hallbera Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 31. október 2014 16:30 Ólína Guðbjörg Viðarsdóttir í leik með Val á móti Fylki í sumar. Vísir/Daníel
Valsmenn halda áfram að missa reynslumikla bakverði úr kvennaliðinu sínu en Ólína Guðbjörg Viðarsdóttir skrifaði í dag undir samning við Fylki eins og kemur fram á fótbolti.net. Ólína Guðbjörg Viðarsdóttir hefur spilað með Val í eitt og hálf ár síðan að hún kom heim úr atvinnumennsku en hún tilkynnti á dögunum að hún gæfi ekki lengur kost á sér í íslenska landsliðið. Ólína var með 4 mörk í 15 leikjum með Valsliðinu í Pepsi-deild kvenna í sumar en Valskonur enduðu í 7. sæti og hafa aldrei verið neðar. Valsliðið missti á dögunum landsliðskonuna Hallberu Guðnýju Gísladóttur í Breiðablik. Fylkiskonur slógu í gegn á sínu fyrsta ári í deildinni, náðu 5. sæti í deildinni og féllu út í vítakeppni í undanúrslitum bikarsins. „Ég er ótrúlega ánægð með þetta. Ég heillaðist af metnaðinum og kraftinum sem ég fann hérna og langaði rosalega mikið að taka þátt í því," sagði Ólína í samtali við blaðamann fótbolta.net sem fékk að vera viðstaddur þegar Ólína skrifaði undir samninginn í dag. Ólína Guðbjörg var ekki lengi að hugsa sig um þegar Fylkismenn höfðu samband en Jörundur Áki Sveinsson mun þjálfa liðið og Þóra Björg Helgadóttir aðstoðar hann. „Þetta var ákveðið á einum degi. Þegar ég heyrði í þjálfurunum, stjórninni og ráðinu þá sannfærðist ég strax. Ég er mjög spennt fyrir þessu," sagði Ólína í fyrrnefndu viðtali á fótbolta.net.
Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Mourinho er eins og Simpsons-þátturinn“ Sport Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Körfubolti FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Fótbolti „Ég er oftast mjög rólegur“ Körfubolti Elvar með stórleik í Evrópukeppninni Körfubolti Uppgjörið: Tindastóll-Valur 45-72 | Stólarnir klesstu á Valsvegg Körfubolti „Förum að gera klaufamistök og klikka á dauðafærum“ Handbolti Uppgjörið: KR - Sindri 107-102 | Seiglan sigraði Sindra Körfubolti Fleiri fréttir Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Sjá meira