Haukur og Peter höfðu betur gegn íslensku drekunum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 21. október 2014 18:54 Haukur Helgi Pálsson. Vísir/Andri Marinó
Haukur Helgi Pálsson og Peter Öqvist, fyrrum þjálfari íslenska landsliðsins í körfubolta, höfðu betur á útivelli gegn Sundsvall Dragons, 94-85, í Íslendingaslag í sænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld. Fjórir íslenskir leikmenn leika með liði Sundsvall Dragons en þrír þeirra spiluðu fyrir Peter Öqvist þegar hann þjálfaði Drekana á síðustu leiktíð. Það var nóg af íslenskum stigum í leiknum því þau urðu á endanum 61 talsins. Tapið hjá Sundsvall Dragons í kvöld þýðir að liðið er búið að tapa tveimur fyrstu heimaleikjum sínum í deildinni en Drekarnir hafa unnið tvo af þremur útileikjum sínum. Haukur Helgi Pálsson var næststigahæstur hjá LF Basket með 17 stig en hjá Sundsvall-liðinu skoraði Hlynur Bæringsson 18 stig, tók 13 fráköst og gaf 6 stoðsendingar. Jakob Örn Sigurðarson var með 17 stig og Ægir Þór Steinarsson skoraði 9 stig. Ragnar Nathanielsson fékk aðeins að spila í rétt rúmar tvær mínútur og skoraði ekki. Sundsvall Dragons liðið byrjaði vel og var sjö stigum yfir eftir fyrsta leikhlutann, 27-20, þar sem Jakob Örn Sigurðarson skoraði sjö af stigunum. LF Basket sótti í sig veðrið í öðrum leikhlutanum en Sundsvall var 50-48 yfir í hálfleik eftir þriggja stiga körfu frá Hlyni Bæringssyni. LF Basket vann þriðja leikhlutann 29-20 og var því sjö stigum yfir fyrir lokaleikhlutann. Haukur Helgi var með níu stig í þessum flotta leikhluta hjá LF-liðinu. LF Basket skoraði síðan sjö fyrstu stigin í fjórða leikhlutanum og var allt í einu komið 14 stigum yfir, 84-70. Eftir það var sigurinn aldrei í hættu.
Körfubolti Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Enski boltinn McGregor fær ekki keppinaut fyrr en hann er leikfær á ný Sport Norris á ráspól í Singapúr Formúla 1 „Það hlaut að koma að því“ Íslenski boltinn Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Handbolti Jafnt hjá PSG og Galatasaray vann stórleikinn í Tyrklandi Fótbolti Setja pressu á Barcelona með sigri Fótbolti „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ Fótbolti Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira