Körfubolti

Hörður með tíu stig í sigri

Anton Ingi Leifsson skrifar
Hörður Axel átti fínan leik í dag.
Hörður Axel átti fínan leik í dag. Vísir/Daníel
Hörður Axel Vilhjálmsson átti góðan leik í sigri Mitteldeutscher BC á Basketball Löven Braunschweig í þýska körfuboltanum í dag.

Staðan eftir venjulegan leiktíma var jöfn og því þurfti að grípa til framlengingar og eftir fyrstu framlengingu var staðan enn jöfn.

Í annari framlengingu voru hins vegar Hörður Axel félagar mikið betri og unnu að lokum fjórtán stiga sigur, 83-97.

Hörður Axel skoraði tíu stig og gaf tvær stoðsendingar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×