Körfubolti

Ragnar með Twitter-nafnið á upphitunartreyjunni

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Ragnar Nathanaelsson er öflugur á Twitter.
Ragnar Nathanaelsson er öflugur á Twitter. vísir/samsett
Ragnar Nathanaelsson og félagar hans í sænska Íslendingaliðinu Sundsvall Dragons spiluðu sinn fyrsta heimaleik í úrvalsdeildinni þar í landi í kvöld.

Risinn Ragnar, sem kom til Sundsvall frá Þór Þorlákshöfn í sumar, er strax farinn að vekja athygli fyrir skemmtilega framkomu, og sjálfur er hann að vekja athygli á sér.

Hann tók nefnilega upp á þeirri nýjung að láta prenta Twitter-nafnið sitt aftan á upphitunartreyjuna, þannig að þeir sem eru í stúkunni geta bætt @RaggiNat við á Twitter og fylgst með Ragnari á samskiptamiðlinum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×