Körfubolti

Hlynur sá fimmti besti í Svíþjóð

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Jakob Örn Sigurðarson og Hlynur Bæringsson.
Jakob Örn Sigurðarson og Hlynur Bæringsson. vísir/valli
Hlynur Bæringsson, leikmaður Sundsvall Dragons og íslenska landsliðsins í körfubolta, er besti Íslendingurinn sem spilar í sænsku úrvalsdeildinni og sá fimmti besti af öllum í deildinni.

Sænski körfuboltavefurinn Basketsvergie.se stendur fyrir kosningu á 100 bestu leikmönnum deildarinnar á hverju ári og eru úrslitin birt þegar deildin hefst, en fyrstu leikirnir fara fram í kvöld.

Fjöldi sérfræðinga tekur þátt í kjörinu og gefur hver og einn leikmönnunum í úrvalsdeildinni einkunn frá 1-10. Meðaltalið er svo reiknað til að finna út þá 100 bestu.

Hlynur er með 8,89 í meðaleinkunn í fimmta sæti, einu sæti fyrir ofan samherja sinn Jakob Örn Sigurðarson (8,67) sem var í þriðja sæti í kosningunni í fyrra og efstur árið þar áður.

Hlynur var í níunda sæti í fyrra og sjöunda sæti fyrir tímabilið 2012, en hann þótti spila frábærlega fyrir Drekana á síðasta tímabili.

Haukur Helgi Pálsson.vísir/vilhelm
Ísland á annan leikmann á topp 20 því Haukur Helgi Pálsson, sem hefur nú sína fyrstu leiktíð í Svíþjóð með Sundsvall Dragons, er talinn 19. besti leikmaður deildarinnar. Hann fékk 7,56 í meðaleinkunn.

Haukur Helgi gekk í raðir LF Basket fyrir tímabilið en þjálfari þess er PeterÖqvist, fyrrverandi þjálfari Sundsvall Dragons og íslenska landsliðsins.

Hinir drekarnir tveir; Ægir Þór Steinarsson og RagnarNathanaelsson, eru einnig á listanum. Ægir er í 46. sæti með 6,22 í meðaleinunn og risinn Ragnar með 5,11 í 66. sæti, en hann er að hefja sitt fyrsta ár í atvinnumennsku.

Sundsvall Dragons hefur leik í sænsku úrvalsdeildinni í kvöld líkt og LF Basket. Drekarnir heimsækja Jämtland Basket en LF Basket fær Umeå BSKT í heimsókn.

Einkunnir Íslendinganna:

5. Hlynur Bæringsson, Sundsvall Dragons 8,89

6. Jakob Örn Sigurðarson, Sundsvall Dragons 8,67

19. Haukur Helgi Pálsson, LF Basket 7,56

46. Ægir Þór Steinarsson, Sundsvall Dragons 6,22

66. Ragnar Nathanaelsson, Sundsvall Dragons 5,11




Fleiri fréttir

Sjá meira


×