Körfubolti

Bandaríkjamenn flugu í úrslit

Kyrie Irving er hér í vörninni í kvöld.
Kyrie Irving er hér í vörninni í kvöld. vísir/afp
Bandaríkin eru komin í úrslit á heimsmeistaramótinu í körfubolta. Litháar höfðu ekkert að gera í Bandaríkjamenn í kvöld.

Nokkuð jafnræði var reyndar með liðunum í fyrri hálfleik og Litháarnir hleyptu bandaríska liðinu ekki of langt fram úr sér.

Staðan í hálfleik var 43-35 fyrir Bandaríkin en þeir stigu á bensínið í þriðja leikhluta. Þá sýndu Bandaríkjamenn sitt rétta andlit, pökkuðu Litháum saman og kláruðu leikinn.

Staðan eftir þriðja leikhluta var 76-49 og fjórði leikhlutinn því algjört formsatriði. Lokatölur 96-68.

Kyrie Irving var stigahæstur í bandaríska liðinu með 18 stig. Bandaríkin mæta Serbíu eða Frakklandi í úrslitaleiknum en hinn undanúrslitaleikurinn fer fram annað kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×