Biðu í 16 ár á milli sigra en unnu svo tvo í röð Tómas Þór Þórðarson skrifar 1. september 2014 23:23 Gorgui Dieng sækir að körfunni. vísir/getty
Spánn er efst í A-riðli heimsmeistarakeppninnar í körfubolta með sex stig eftir þriðja sigurinn í jafnmörgum leikjum í kvöld. Spánn rúllaði yfir sterkt lið Brasilíu, 82-63, en Brassar voru búnir að vinna sterkan sigur á Frakklandi og valta yfir Íran.Pau Gasol, tvöfaldur NBA-meistari með LA Lakers, var öflugur fyrir Spán og skoraði 26 stig og tók níu fráköst. LeandrinhoBarbosa, leikmaður Phoenix Suns, var stigahæstur Brasilíumanna með ellefu stig. Í sama riðli vann Frakkland stórsigur á Egyptum, 94-55, og Serbar völtuðu yfir Íran, 83-70. Frakkland, Brasilía og Serbía eru öll með fimm stig. Senegal hafði ekki unnið leik á HM í 16 ár þar til það lagði Púertó Ríkó nokkuð óvænt í gær, 82-75. Senegalar þurftu ekki að bíða jafnlengi eftir næsta sigri því þeir unnu aftur í kvöld. Senegal vann jafnvel enn óvæntari sigur á firnasterku liði Króatíu, 77-75, en Króatía var búið að leggja bæði Púertó Ríkó og Argentínu að velli í fyrstu tveimur umferðunum.Gorgui Dieng, leikmaður Minnesota Timberwolves, skoraði 27 stig og tók átta fráköst fyrir Senegal, en Dario Saric sem Orlando Magic valdi tólfta í nýliðavalinu í ár skoraði 15 stig fyrir Króata. Argentína vann Filipseyjar í skemmtilegum leik, 85-81, þar sem Luis Scola var stigahæstur með 1 stig og þá vann Grikkland sigur á Púertó Ríó, 90-79. Grikkir eru efstir með fullt hús eða sex stig í b-riðli og þar á eftir koma Króatar, Senegalar og Argentínumenn með fimm stig.Króatía-Senegal Argentína-Filipseyjar
Körfubolti Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ Fótbolti „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Enski boltinn McGregor fær ekki keppinaut fyrr en hann er leikfær á ný Sport Dubois rústaði Joshua: „Ég er stríðsmaður allt til enda“ Sport „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ Enski boltinn „Það hlaut að koma að því“ Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Formúla 1, Bestu deildirnar, Sveindís Jane og NFL Sport Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Íslenski boltinn Norris á ráspól í Singapúr Formúla 1 Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira