Tónlist

Sættir takast hjá ungum rappkóngum

Þórður Ingi Jónsson skrifar
Spaceghostpurrp (t.v.) og A$AP Rocky árið 2011, þegar allir voru vinir í skóginum.

Ekki liggur fyrir hvenær gulltennur verða stórt tískufyrirbæri hér á landi.
Spaceghostpurrp (t.v.) og A$AP Rocky árið 2011, þegar allir voru vinir í skóginum. Ekki liggur fyrir hvenær gulltennur verða stórt tískufyrirbæri hér á landi.
Rappaðdáendur heimsins glöddust vafalaust í dag þegar tónlistarmaðurinn Spaceghostpurrp frá Miami átti samræður á Twitter við A$AP Yams, umboðsmann og hægri hönd rappstjörnunnar A$AP Rocky frá New York.

A$AP Rocky og Spaceghostpurrp unnu mikið saman á sínum tíma en síðan slettist upp á vinskapinn hjá þeim köppum árið 2012. Eftir það var mikill rígur á milli rapphópa þeirra beggja, Raider Klan og A$AP Mob.

Af Twitter-síðu Spaceghostpurrp má hins vegar álykta að deilunni sé lokið. „Var að rabba við A$AP Yams í símann. Klan og A$AP eru komnir aftur, skilurðu...  ÁST OG FRIÐUR,“ segir Purrp á síðunni sinni, sérvitur að vana. Ágreiningurinn var oft grimmur á köflum og færðist stundum harka í leikinn.

Samkvæmt A$AP Rocky voru þeir tveir hins vegar mjög nánir áður en það slitnaði upp úr milli þeirra. „Hann átti heima hjá mér á sínum tíma. Mamma mín sá um hann. Áður en ég var með plötusamning deildum við saman mat og læti,“ sagði Rocky í viðtali við hipp-hopp tímaritið Complex árið 2011.

Spaceghostpurrp og A$AP Rocky hafa vakið mikla athygli seinustu ár í tónlistarheiminum. Spaceghost er taktsmiður og rappari sem býr til afar myrka og sveimkennt rapp með töktum sem eru oft mjög „lo-fi“ og kakófónískir. A$AP Rocky er helst þekktur fyrir að blanda saman sígildu New York rappi við hægt, afslappað rapp sem á uppruna sinn í Suðurríkjunum og er þekkt sem „chopped‘n‘screwed“ rapp.

Hér fyrir neðan má heyra lag sem kapparnir gerðu saman þegar allt lék í lyndi árið 2012.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×